Velkomin
Reykjavíkurmaraþon
Sverrir Árna lýsir Reykjavíkurmaraþoninu þannig.
Hópur vaskra manna úr SHS tóku til fótanna í Reykjavíkurmaraþoni á menningarnótt. Að venju var hlaupið með fatlaða í sérhönnuðum hjólastólum sem fengnir voru að láni hjá Íþróttasambandi fatlaðra. Þetta hefur verið árviss viðburður undanfarin 6 ár og hafa bæði fatlaðir og ófatlaðir gríðarlegt gaman af. Í ár var ákveðið að hlaupa í sjúkraflutningagöllum en þrír úr hópnum ákváðu að ganga en lengra og hlaupa í „norsku“ eldgöllunum. Hlaupið heppnaðist í alla staði mjög vel og náðum við ágætis tíma 1 klst og 4 mínútur. Þeir sem hlupu í eldgöllum áttu þó nóg með sjálfa sig enda að hlaupa með um 8 kg aukalega. Gríðarlega heitt er líka í göllunum og má teljast nokkuð vel af sér vikið að hafa klárað 10 km hlaup í þess konar búnaði. Þeir sem voru léttar búnir ýttu því hjólastólunum og stóðu sig með stakri prýði. Það er ljóst að þessi viðburður er kominn til að vera en ekki víst hvort það verði endurtekið a hlaupa í eldgöllum enda sögðu þeir aðspurðir að það væri „ Alger viðbjóður“!
Last Updated (Friday, 27 August 2010 13:17)
Hjóna HjólaferðThere are no translations available.
Sælt veri fólkið. Last Updated (Wednesday, 25 August 2010 13:47) |







